Krabbameinsskrá Íslands

Tölfræði krabbameina á Íslandi

  • Á árbilinu 2005 - 2009 greindust að meðaltali árlega 724 karlar og 663 konur með krabbamein.
  • Í árslok 2009 voru á lífi 10.934 einstaklingar (4.837 karlar og 6.097 konur) sem greinst höfðu með krabbamein.
  • Um þriðjungur Íslendinga fær krabbamein á lífsleiðinni.
  • Krabbamein eru fátíð undir 40 ára aldri og meira en helmingur allra krabbameina greinist eftir 65 ára aldur eins og eftirfarandi skífurit sýna.
  • Rétt yfir fjórðungur dánarmeina er af völdum krabbameina. Hér má sjá skiptingu eftir upprunalíffæri meinsins.
  • Fimm ára lífshorfur krabbameinssjúklinga hafa meira en tvöfaldast frá því að skráning krabbameina hófst á Íslandi árið 1954.

Krabbameinum raðað eftir árlegum meðalfjölda 2005 - 2009